Greinar
Hér fyrir neðan má finna lista yfir greinar og ritgerðir sem starfsmenn safnsins hafa ritið um vefsafnanir og málefni þeim tengd.
Managing duplicates across sequential crawls [enska]
Höfundur: Kristinn Sigurðsson, fagstjóri Upplýsingatæknihóps Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns.
Greinin fjallar um viðbótarhugbúnað við vefsöfnunartólið Heritrix sem gerir mögulegt að sía út skjöl sem ekki hafa breyst milli safnanalota.
Greinin var skrifuð fyrir og kynnt á International Web Archive Workshop 2006 (http://www.iwaw.net/06/, lesa grein).
Web Archiving, Challenges and Problems [enska]
Höfundur: Þorsteinn Hallgrímsson, aðstoðarlandsbókavörður Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns.
Greinin fjallar um upphafið að söfnun vefsíðna í ýmsum löndum og helstu vandamál og áskoranir sem taka þarf tillit til.
Greinin var birt í ritinu Kungl. biblioteket i Humlegården och i (cyber)världen s. 380-403 (ISSN 0065-1060 og ISBN 91-7000-253-3) sem Konunglega bókasafnið í Stokkhólmi gaf út 2006 (lesa grein).
Access and Finding Aids [enska]
Höfundur: Þorsteinn Hallgrímsson, aðstoðarlandsbókavörður Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns.
Greinin fjallar um aðgang að vefsöfnum og tækni sem gerir slíkt kleyft.
Greinin var birt í ritinu Web Archiving, s. 131-151 árið 2006, Ritstjóri Julien Masanès, útgefandi Springer, ISBN: 978-3-540-23338-1 (lesa grein).
Incremental Crawling with Heritrix [enska]
Höfundur: Kristinn Sigurðsson, fagstjóri Upplýsingatæknihóps Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns.
Greinin fjallar um viðbótarhugbúnað við vefsöfnunartólið Heritrix sem gerir mögulegar samfelldar, sjálfaðlagandi vefsafnanir.
Greinin var skrifuð fyrir og kynnt á International Web Archive Workshop 2005 (http://www.iwaw.net/05/, lesa grein).
Adaptive Revisiting with Heritrix [enska]
Höfundur: Kristinn Sigurðsson, fagstjóri Upplýsingatæknihóps Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns.
Mastersritgerð í tölvunarfræði sem fjallar um samfelldar sjálfaðlagandi vefsafnanir. Greinin er á köflum mjög tæknileg en inniheldur einnig mikið af almennum fróðleik um vefsafnanir.
Vörnin fór fram í maí 2005, ritgerðina má finna í Skemmunni (ritgerðin í skemmunni, lesa ritgerð).
Söfnun vefsíðna og Heritrix
Höfundur: Kristinn Sigurðsson, fagstjóri Upplýsingatæknihóps Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns.
Greinin fjallar um notkun Heritrix vefsöfnunarhugbúnaðarins til að framkvæma vefsafnanir Landsbókasafnsins.
Greinin var birt í tímaritinu Bókasafnið, árið 2005 (http://www.bokasafnid.is, lesa grein á timarit.is).
Varðveisla íslenskra vefsíðna
Höfundur: Þorsteinn Hallgrímsson, aðstoðarlandsbókavörður Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns.
Greinin fjallar almennt um söfnun vefsíðna.
Greinin var birt í tímaritinu Bókasafnið, árið 2004 (http://www.bokasafnid.is, lesa grein á timarit.is).

