Hjálpræðisherinn í Reykjanesbæ er staðsettur á Ásbrú og var stofnaður árið 2008. Haustið 2020 var starfsemi Hjálpræðishersins í Reykjanesbæ færð undir Hjálpræðisherinn í Reykjavík og tilheyrir því Reykjavíkurflokki. Tengiliður við Reykjanesbæ er Hjördís Kristinsdóttir.
Í Reykjanesbæ er prjónahópur alla þriðjudaga kl. 19:30. Einnig starfa sjálfboðaliðar við fataflokkun fyrir Hertex.
Bæn og matur er alla þriðjudaga kl. 12 og unglingastarf fyrir 8. til 10. bekk í samstarfi við KFUM og KFUK er á miðvikudagskvöldum (hér má sjá upplýsingar um BUH).
Hjálpræðisherinn í Reykjanesbæ er á Facebook.