Stærs​ta frumkvöðlakeppni landsins
Click Here
Lifandi samfélag
frumkvöðla
Click Here
Ert þú frumkvöðull?
Click Here
Er þetta þitt
tækifæri?
Click Here

Fyrirkomulag

Skráning

20. janúar

Opnað verður fyrir skráningu í Gulleggið þann 14. október. Þú hefur til miðnættis 20. janúar til að skrá þig – með eða án hugmyndar.

Masterclass

21. & 22. janúar

Eruð þið tibúin? Hér ætlum við að mastera það að umbreyta hugmynd í viðskiptatækifæri. Markmiðið er að þú labbir inn með hugmynd og gangir út með 10 glæru kynningu sem gerir þér kleyft að taka næsta skref. 

Forkeppni

27. janúar

Þú hefur til miðnættis 27. janúar til að fínpússa kynninguna þína og senda hana inn. Fjölmenn dómnefnd mun fara yfir allar umsóknir og velja bestu keppniskynningarnar. 

Topp 10

4. & 5. febrúar

Ef þú ert í þessum hóp þá ertu kominn langt! Vinnustofur fyrir Topp 10 verða haldnar 4. og 5. febrúar. Þar munu keppendur áfram vinna í sínum kynningum með aðstoð sérfræðinga úr atvinnulífinu og fá þar að auki framkomuþjálfun svo allt sé upp á 10 fyrir aðal keppnina.

Keppnin

10. febrúar

Gulleggið 2023 fer fram í hátíðarsal Grósku 10. febrúar og er opið öllum. Hér munu björtustu vonirnar keppast um Gulleggið. Það er til mikils að vinna því Gulleggið hefur verið stökkpallur fyrir fjölmörg íslensk fyrirtæki sem dæmi Controlant, Meniga, Pay Analytics, Genki og fjölmörg önnur. 

Ertu með hugmy​nd?

Ert þú með góða viðskiptahugmynd sem þú telur að geti orðið að veruleika? 
Þá átt þú svo sannarlega heima í Gullegginu!

Viltu vera með en ert ekki með hugmynd?

Býrð þú yfir þekkingu og reynslu sem þú telur að geti nýst öðrum vel? Brennur þú fyrir nýsköpun og vinnur vel í teymi? Þá átt þú svo sannarlega heima í Gullegginu!

Vissir þú?

+ 0 kr
Peningaverðlaun
+ 0
Hugmyndir frá upphafi
+ 0
Leiðbeinendur
+ 0
Einstaklingar án hugmynda
+ 0
Topp 10 hugmyndir

Fréttir

Gulleggið 2022 sigurvegarar_topp 3 TVÍK, SEIFER Lilja app

Frumkvöðlarnir TVÍK unnu Gulleggið 2022

Lokakeppni Gulleggsins, stærstu og elstu frumkvöðlakeppni Íslands, á vegum Icelandic Startups fór fram í hátíðarsal Grósku föstudaginn 4. febrúar. Mikil spenna var

Gulleggið var frábær stökkpallur fyrir okkur í HEIMA teyminu til þess að móta hugmyndina okkar og koma henni á framfæri. Við fengum líka að kynnast framúrskarandi fólki úr nýsköpunarsenunni sem gáfu okkur endurgjöf og góð ráð. Ég hvet öll þau sem eru með góða viðskiptahugmynd í kollinum eða hafa áhuga á nýsköpun til þess að kynna sér Gulleggið

Ég hvet alla sem eru með hugmynd að fyrirtæki í kollinum um að sækja um í Gullegginu. Gulleggið var frábært staðfesting á viðskiptahugmyndinni okkar, við fengum góða endurgjöf, og svo var þetta líka svo skemmtilegt. 

Dr. Margrét Vilborg Bjarnadóttir 

Gulleggið var frábær vettvangur til að kynnast frumkvöðlaumhverfi Íslands og fá þessa dýrmætu endurgjöf á fyrri stigum

Fyrir okkur stofnendur Solid Clouds var Gulleggið í lykilhlutverki þegar við vorum að stíga okkar fyrstu skref þar sem við öðluðumst reynslu í framsetningu og komumst í kynni við aðra frumkvöðla sem og fjárfesta